Styrkir Norðurorku hf. til samfélagsverkefna

Norðurorka styrkir samfélagsverkefni
Norðurorka styrkir samfélagsverkefni

Norðurorka hf. veitir fjárstyrki til samfélagsverkefna. Stærri styrkir eru veittir einu sinni á ári og sérstaklega auglýst eftir þeim í miðlum sem hafa dreifingu á starfssvæði Norðurorku hf.

Veittir eru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála.

Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Nú hefur verið auglýst eftir styrkjum vegna ársins 2017.  Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2016 og gert ráð fyrir að styrkjum verði úthlutað fyrir miðjan janúar 2017.  Styrkir eru fyrst og fremst veittir til starfsemi á starfssvæði Norðurorku hf. en einnig hafa verið veittir styrkir til verkefna sem taka til landsins alls.

Umsóknareyðublað vegna styrkja skal fylla út og senda:

(1) Með pósti á Norðurorka hf., Rangárvöllum, 603 Akureyri eða

(2) sem fylgiskjal með tölvupósti á netfangið no@no.is

Fylgiskjöl með umsókninni má senda hvort heldur sem er í tölvutæku formi með tölvupóstinum eða með póstlagðri umsókn.

Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknareyðublað á PDF formi.

Umsóknareyðublað á Word formi.