Grunnskóli Fjallabyggðar leitar eftir kröftugum og jákvæðum starfskrafti í vinnu frá og með næsta skólaári. Um er að ræða 75% - 100% stöðu stuðningsfulltrúa, í teymi sem vinnur með nemanda með fötlun. Starfið fer fram á báðum starfsstöðvum skólans, en þó aðallega í Ólafsfirði. Starfsmaður þarf að treysta sér til að keyra á milli bæjarkjarna með nemandann.
Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.
Upplýsingar veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri í síma 464 9150 eða í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is.
Sótt er um starfið á netfangið erlag@fjallaskolar.is
Umsóknarfrestur er 25. júní 2023