Mynd: Aðsend
Frá vinstri Hörður Ingi, Júlíus, Mikael og Tryggvi
Tvíburabræðurnir Tryggvi Þorvaldsson og Júlíus Þorvaldsson ásamt Herði Inga Kristjánssyni og Mikael Sigurðssyni voru fulltrúar Menntaskólans á Tröllaskaga í söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í beinni útsendingu á Rúv föstudagskvöldið 26. september sl.
Strákarnir slógu í gegn með flutningi sínum á lagi John Mayer, I'm gona find another you. Bein útsending var frá keppninni, í húsi Exton í Kópavogi. Keppnin átti upphaflega að fara fram í vor en var slegið á frest vegna COVID-19 .
Óhætt er að fullyrða að heimamenn eru gríðarlega stoltir af strákunum og óskar Fjallabyggð þeim, Menntaskólanum á Tröllaskaga og Tónlistarskólanum á Tröllaskaga hjartanlega til hamingju með sigurinn.