Sorp­hirðan í Fjallabyggð biður íbúa um að moka frá sorptunn­um

Vegna mikils fannfergis undanfarið hefur gengið illa að hreinsa sorp frá húsum í bænum. Þeim tilmælum er þvi beint til húseigenda í Fjallabyggð að moka frá sorptunnum hjá sér svo hægt verði að hirða sorp frá heimilum.

Næsti sorphirðudagur er í dag þriðjudaginn 28. nóvmeber. Íbúar þurfa því að moka frá sorptunnunum og hafa greiða leið að þeim fyrir þá sem koma og losa þær. Ef aðgengi að sorptunn­um er slæmt og íbú­ar hafa ekki sinnt því að greiða götu starfs­fólks sorp­hirðunn­ar, verða tunnur ekki tæmdar.

Hér eru helstu ástæður fyrir því að ekki er hægt að losa tunnur:
  • Ekki búið að moka frá tunnum svo ekki er hægt að ná í þær.
  • Frosnar hurðar og ekki hægt að opna þær.
  • Frosnir lásar að sorpgeymslum, –gerðum og –skápum svo ekki er hægt að komast að tunnum.
  • Bílar fyrir sem hefta aðgengi starfsfólks og hirðubíls.