Sólberg ÓF aflahæstur frystitogara

Sólberg ÓF varð aflahæst frystitogara á árinu sem var að ljúka. Afli skipsins varð 12.553 tonn í 12 löndunum. Næsta skip var Kleifaberg RE með 11.872 tonn í 20 löndunum. Í þriðja sætinu varð Vigri RE með 10.771 tonn. Þetta eru einu togararnir sem ná yfir 10.000 tonna markið.

Frá þessu er greint á fréttavefnum http://www.aflafrettir.is/ sem Gísli Reynisson heldur úti.