Hunda- og kattahald í Fjallabyggð er háð leyfi bæjarstjórnar og bundið þeim skilyrðum sem tilgreind eru í samþykktum um hunda- og
kattahald frá júlí 2012. Hunda- og kattaeigendum ber að sækja um leyfi til dýrahalds á skrifstofu Fjallabyggðar fyrir alla hunda og ketti sem halda
á í Fjallabyggð á þar til gerðu eyðublaði.
Haldið er utan um skráningu dýranna af starfsmönnum Fjallabyggðar.
Vakin er athygli á því að brot gegn samþykktum þessum varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi
laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum
nr. 88/2008 um meðferð sakamála.