Félagarnir á skíðasvæði Siglufjarðar, Skarðsdal, hafa ákveðið að opna skíðasvæðið þann 1. desember nk. Engin hækkun verður á lyftumiðum og vetrarkortum frá því í fyrra.
Vetraarkort barna 9-17 ára kr. 10.000.-
Vetraarkort fyrir 18 ára og eldri kr. 25.000.-
Vetraarkort framhalds og háskólanema kr. 15.000.-
Tilboð á vetrarkortum í nóvember verða auglýst síðar.
Framkvæmdir eru hafnar við nýjan veg 1200 metra langan og verða gerð stór og góð bílastæði og vonandi á næsta ári rís nýr skáli, neðstalyftan mun færast og liggja frá nýjum skála og upp á Súlur og vonandi kemur töfrateppi í fjallið sem verður einnig út frá nýjum skála og má nú segja að miklar framkvæmdir séu hafnar til hins betra fyrir alla gesti.
Allar nánari upplýsingar á http://www.skardsdalur.is/
Sjáumst hress í Skarðsdalnum