Skafl 2017

Skafl er tilraunaverkefni sem fram fer í fyrsta sinn helgina 3. - 5. mars.

Þar koma saman nokkrir kraftmiklir lista- og leikmenn sem hafa sérstakan áhuga á snjó og hafa jafnvel unnið með hann í verkum sínum. Eins og gefur að skilja eru snjóskaflar alla jafna orðnir ansi háir við umferðagötur á Siglufirði í mars, og er meiningin að kanna möguleika skaflanna sem uppsprettu listaverka.

Dagskráin verður sem hér segir:

  • Föstudagur 3. mars kl. 14.00 - 18.00 Verður unnið í og með snjóinn á gamla fótboltavellinum á Siglufirði sem Alþýðuhúsið stendur við.
  • Laugardagur 4. mars kl. 14.00 - 18.00 Hrafnkell Sigurðsson opnar sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu.
  • Laugardagur 4. mars kl. 15.00 - 18.00 Sýning og uppákomur á gamla fótboltavellinum og við Alþýðuhúsið.
  • Sunnudagur 5. mars kl. 14.30 - 15.30 Örlygur Kristfinnsson og Jón Laxdal sjá um sunnudagskaffi með skapandi fólki.

Kaffi, kakó og meðlæti í boði.

Verið velkomin.

Þátttakendur í SKAFLI 2017 eru:

Brák Jónsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Jan Voss, Aðalsteinn Þórsson, Arna Guðný Valsdóttir, Örlygur Kristfinnsson, Jón Laxdal, Jónína Björg Helgadóttir, Michael Coppelov, J Pasila, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Valur Þór Hilmarsson.

Mynd:  Hrafnkel Sigurðsson   Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir

Ljósmyndin af snjóskaflinum er eftir Hrafnkel Sigurðsson og er úr myndröðinni Urban mountains.

Ljósmyndina af Alþýðuhúsinu tók Kristín Sigurjónsdóttir.