Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 14. júní. Hlaupið fer fram bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ. Hlaupið var í Garðabæ og á 7 stöðum um landið; á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Laugum í Þingeyjarsýslu, Grundarfirði, Stykkishólmi og í Skaftafellssýslu. Rúmlega 2.000 konur tóku þátt í Garðabæ og um 500 konur á landsbyggðinni. Nú taka árlega um 16.000 konur þátt á 90 stöðum hérlendis og 16 stöðum erlendis.
Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar heilsueflingar. Kvennahlaupið höfðar til allra kvenna þar sem hægt er að velja mislangar vegalengdir. Engin tímataka er í hlaupinu og því ekki hlaupið nema til persónulegs sigurs.
Kvennahlaupið er haldið sem næst kvenréttindadeginum 19. júní þar sem höfðað er til samstöðu kvenna. Innifalið í þátttökugjaldinu er kvennahlaupsbolurinn sem er úr dry-fit efni, með V-laga hálsmáli og verðlaunapeningur.

Í Ólafsfirði er hlaupið frá íþróttamiðstöðinni kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 3 km ‐ 5 km ‐ 7 km og 10 km. Frítt í sund og súpa að loknu hlaupi.

Á Siglufirði er hlaupið frá Kaffi Rauðku kl. 11.00. Vegalengdir í boði: 2,5 km, 3 km og 5 km. Ávaxta- og grænmetishlaðborð í lok hlaups.