Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð standa saman að samráðsfundi fyrir ferðaþjónustuaðila á Tröllaskaga miðvikudaginn 1. mars nk. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarborg Ólafsfirði og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
- Ferðaþjónusta, samvinna og nýsköpun
- Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri Fjallabyggðar
- Tækifærin allt árið
- Freyr Antonsson, forseti sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar
- Samstaða og slagkraftur skila árangri
- Rögnvaldur Már Helgason frá Markaðsstofu Norðurlands
- Framtíð vefsíðunnar visittrollaskagi.is
- Opnar umræður
Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila á svæðinu til að mæta.
Allir hjartanlega velkomnir.