Opnun Hátinds 60+ í Tjarnarborg í dag kl. 12:00 - Rútuferðir frá Siglufirði

Fjallabyggð ásamt samstarfsaðilum ýta úr vör metnaðarfullu nýsköpunar- og þróunarverkefni sem snýr að þjónustu við íbúa sveitarfélagsins 60 ára og eldri. Súpufundur verður haldinn í menningarhúsinu Tjarnaborg í Ólafsfirði miðvikudaginn 29. mars kl. 12:00.
 
Akstur verður frá Ráðhúsinu Siglufirði kl: 11:30 - Brottför frá Tjarnaborg kl. 13:10
 
Dagskrá:
 
12:00 Léttur hádegisverður og kaffi
12:15 Ávörp frá ráðherrum og bæjarstjóra
12:50 Ljúfir tónar frá Eddu og Guðmanni