Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra 2020

Mynd: Eyþing
Mynd: Eyþing

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2020.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.  

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2020. 

Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00, mánudaginn 7. október. Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00, fimmtudaginn 7. nóvember. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings: www.eything.is, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga: www.atthing.is og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar: www.afe.is

Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna. 

Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:

Viðtalstímar: 
Mánudagur 14. október

  • kl. 13:00-14:00                   Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði, Ólafsfjörður 
  • kl. 14:30-15:00                   Ráðhúsinu Siglufirði, Siglufjörður
  • Fyrir utan ofangreindar dagsetningar bjóða ráðgjafar upp á viðtalstíma á starfsstöðvum sínum eftir samkomulagi.

Frekari upplýsingar veita:

Ari Páll Pálsson netfang aripall@atthing.issími 464 0416
Baldvin Valdemarsson á netfang baldvin@afe.is  sími 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir netfang vigdis@eything.is  sími 464-9935

Auglýsing á pdf til útprentunar

Tilkynningin er aðsend.