Mummi, Alda Dís og Aron í Tjarnarborg

Tónleikar verða í Menningarhúsinu Tjarnarborg Ólafsfirði, í kvöld, 11. maí kl. 20:00.  Það eru þau Mummi, Alda Dís og Aron sem skemmta.

Alda Dís Arnardóttir:
Alda er ný og upprennandi söngkona sem skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún vann hæfileikakeppnina Ísland got talent árið 2015. Í kjölfarið gerði hún sína fyrstu sólóplötu HEIM sem kom út í nóvember það sama ár. Núna í febrúar tók í hún þátt í söngvakeppni sjónvarpsins og hreppti annað sætið með lagið NOW/Augnablik.
Mummi/Guðmundur Reynir Gunnarsson:
Mummi er stórkostlegur píanóleikari sem hefur gert garðinn frægan í fótboltanum. Hann gaf út sína fyrstu sólóplötu, Various Times in Johnny’s Life, árið 2010. Núna í ár tók hann einnig þátt í Ísland got talent og sannaði fyrir þjóðinni hvað hann er ótrúlega fjölhæfur en hann keppti í undanúrslitum og stóð sig með prýði.
Aron Steinþórson:
Aron er söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Puffin Island. Hljómsveitin var stofnuð 2015 og er Indí/Rokkhljósveit og þeir hafa átt 3 lög á top 20 lista rásar 2 á síðasta ári og þar af eitt á í topp 3. Fyrsta plata hljómsveitarinnar mun koma út í sumar.

Aðgangseyrir - 2.000 krónur
16 ára og yngri - 1.000 krónur
Það er heiður að taka á móti þessu efnilega tónlistarfólki og eru sem flestir hvattir til að mæta og eiga góða stund í Menningarhúsinu Tjarnarborg.