KEA auglýsir eftir umsóknum í Menningar- og viðurkenningarsjóð

Merki KEA
Merki KEA

Styrkúthlutun tekur til eftirfarandi flokka: 

1. Menningar- og samfélagsverkefni.

Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar. Hér má nálgast umsóknareyðublað fyrir Menningar- og samfélagsstyrki.

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.  Hér má nálgast umsóknareyðublað fyrir unga afreksmenn

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði. Hér má nálgast umsóknareyðublað fyrir íþrótta- og æskulýðsstyrki.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má hér að ofan eða á skrifstofunni og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir 1. nóvember 2016.