Það verður mikið um að vera í Menningarhúsinu Tjarnarborg á næstu dögum. Á föstudaginn hefst svokallað Tröllaskaga Art
Exhibition
en það eru viðburður sem skipulagðir eru í sameinginu af Önnu Maríu Guðlaugsdóttur forstöðumanni Menningarhússins
Tjarnarborgar og Alice Liu forstöðumanni Listhússins í Ólafsfirði.
Í Menningarhúsinu verða m.a. sýnd verk eftir 20 listamenn frá 10 þjóðlöndum. Dagskráin stendur til þriðjudagsins 29.
júlí. Hægt er að nálgast pdf-útgáfu af dagskránni með því að smella á myndina.