Listahátíðin Frjó

Helgina 9. - 11. júlí fer fram Frjó menningarhelgi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði með þátttöku 15 listamanna. Þetta verður í þriðja sinn sem efnt er til þver faglegrar menningardagskrár undir yfirskriftinni Frjó, en áður voru Reitir workshoop haldið á þessum tíma. Dagskráin samanstendur af tónlist, myndlist, ljóðalestrum, bókverkaútgáfu og gong joga.

Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður tekið á móti frjálsum framlögum við innganginn.

Þátttakendur á Frjó eru:

Ólöf Nordal - myndlist

Eyjólfur Eyjólfsson - tónlist

Björk Níelsdóttir - tónlist

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - tónlist

Línus Orri Gunnarsson - tónlist

Ásgeir Ásgeirsson - tónlist

Joaquin Belart - tónlist

Þórir Hermann Óskarsson - tónlist, bókverkaútgáfa, ljóð

Ragga Gröndal - tónlist

Brák Jónsdóttir - Bókverkaútgáfa

Magnus Trygvason Eliassen - tónlist

Tumi Árnason - tónlist

Ingibjörg Elsa Turchi - tónlist

Hróðmar Sigurðsson - tónlist

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir - gong joga

 Dagskrá á Frjó 2021

 Föstudagur 9. júlí 

kl. 14.00 - Ólöf Nordal opnar sýninguna Villiljós í Kompunni.

kl. 16.30 - Þórir Hermann Óskarsson ljóðalestur í sjö hlutum: The Rime of The Ancyent Marinere (1798) eftir Samuel Taylor Coleridge. Við Bergmyndir í Garðinum við Alþýðuhúsið.

kl. 17.00 - Tónlistarhópurinn Gadus Morhua 

Björk Níelsdóttir söngur og langspil 

Eyjólfur Eyjólfsson söngur, flauta og langspil 

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttur söngur og barokkselló.

Kl. 18.00 - Linus Orri Gunnarsson, tilraun við þjóðlagatónlist. Með honum spila Ásgeir Ásgeirsson, Joaquín Belart, Þórir Hermann Óskarsson, Ragga Gröndal.

 Laugardagur 10. júlí

kl. 14.00 - Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.

kl. 16.30 - Brák Jónsdóttir og Þórir Hermann Óskarsson, Pieces for playing: Bókakynning og útgáfutónleikar.

kl. 20.00 - Magnus Trygvason Eliassen trommur og Tumi Árnason saxafón, tónleikar.

kl. 21.00 - Brynja Hjálmsdóttir, ljóðskáld. Okfruman.

kl. 21.30 - Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit, tónleikar.

Ingibjörg Elsa Turchi - Rafbassi

Tumi Árnason - Saxófónn og elektróník

Magnús Trygvason Eliassen - Trommur

Hróðmar Sigurðsson- Rafgítar

 Sunnudagur 11. júlí 

kl. 11.00 - Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir gong jóga og hugleiðsla undir berum himni í Hvanneyrarkrók (fjaran norðan við bæinn) ef veður leyfir, annars í Alþýðuhúsinu.

kl. 14.00 - Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.