List fyrir alla

List fyrir alla
List fyrir alla

Það er okkur sönn ánægja að kynna nýtt barnamenningarverkefni List fyrir alla.
Á heimasíðu verkefnisins er að finna allar upplýsingar um List fyrir alla og þar er einnig að finna yfirlit yfir viðburði verkefnisins.

List fyrir alla er nýtt listverkefni á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytisins. List fyrir alla er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum.

Stefnt er að því að yfir tíu ára grunnskólagöngu veiti verkefnið börnum góða yfirsýn yfir vettvang lista. Nemendur kynnist fjölbreytileika listanna, íslenskum menningararfi og list frá ólíkum menningarheimum. Á þennan hátt er menningarframboð aukið enn frekar og stuðlað að samstarfi listamanna og listhópa með börnum og ungmennum landsins þar sem gæði og fagmennska eru höfð að leiðarljósi.

Þann 5. október næstkomandi kl. 12.10 mun verkefnið LIST FYRIR ALLA setja á svið leikritið Eldbarnið fyrir nemendur á miðstigi Grunnskóla Fjallabyggðar.