Líf og fjör í Tjarnarborg

Menningarhúsið Tjarnarborg
Menningarhúsið Tjarnarborg
Það er mikið um að vera í Menningarhúsinu  Tjarnarborg þessa daga. Leikfélag Fjallabyggðar er á fullu að æfa leikritið Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson og er fyrirhuguð frumsýning 14. mars. 
Forstöðumaður hússins er svo með ýmsa hluti í skoðun til að auka á fjölbreytileika í starfsemi hússins og m.a. að koma upp búnaði til kvikmyndasýninga. Laugardaginn 15. mars verður sýnd frönsk bíómynd í húsinu sem hluti af Franskri kvikmyndaviku sem haldin verður á Norðurlandi. 

En næst á dagskrá í Menningarhúsinu er dansleikur laugardaginn 1. mars þar sem Hljómsveitin Heldri menn frá Siglufirði leikur fyrir dansi.
Um er að ræða "gömlu dansa ball" og mun hljómsveitin spila frá  kl. 21:00 til miðnættis. 
Húsið verður opnað kl. 20:30
Miðaverð er kr. 2.000 
Dömu- og herrafrí (eins og í gamla daga). 
Nú er um að gera að pússa rykið af skónum. Mæta til að létta lundina og dansa gömlu dansana.
18 ára aldurstakmark.
Veitingahúsið Höllin sér um veitingar.