Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Akureyri heim og býður til hádegisfundar í Hofi á Akureyri kl. 12–13 miðvikudaginn 4. maí.
Starfsfólk Rannís verður til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.
Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem
- Erasmus+,
- áætlunar ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál,
- Creative Europe,
- kvikmynda- og menningaráætlunar ESB,
- Nordplus,
- menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar,
- og Uppbyggingarsjóðs EES.
Vinsamlegast skráðu þig með því að smella hér svo súpa verði klár og smjér, nú og stólar lausir fyrir vér og þér.
Nánari upplýsingar má finna hér: Styrkir til menntunar og menningar | SSNE.is