Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga og tiltekin
álitaefni þeim tengt, 20. október 2012, liggur frammi almenningi til sýnis frá 10. október n.k. fram á kjördag á bæjarskrifstofu
Fjallabyggðar á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl.9:30-12:00 og 13:00-15:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Kjörskrá miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá
Þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, eða 29. september 2012.
Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar á opnunartíma fram á kjördag.
F.h. bæjarstjórnar Fjallabyggðar
Sigurður Valur Ásbjarnarson
Bæjarstjóri