Kjörfundur vegna alþingiskosninga 2009

Tilkynning frá kjörstjórn um fyrirkomulag kjörfundar laugardaginn 25. apríl.

Við kosningar til Alþingis laugardaginn 25. apríl 2009 er skipting í kjördeildir í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem hér segir:

Í kjördeild I í Ráðhúsi Siglufjarðar, 2. hæð kjósa íbúar Siglufjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.

Í kjördeild II í Gagnfræðaskólanum í Ólafsfirði kjósa íbúar Ólafsfjarðar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00.

Kjörfundi má slíta átta klukkustundum eftir að kjörfundur hófst, hafi hálf klukkustund liðið frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.  Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 sbr. 89. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis.

Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum sé þess óskað.

Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar