Kattahreinsun ! Seinni hreinsun

Kattarhreinsun
Kattarhreinsun

Dýralæknir verður í  Fjallabyggð sem hér segir:

Námuvegi 11 (Olís portið), Ólafsfirði, þriðjudaginn 6. desember kl:13:00-15:00 

Áhaldahúsinu, Siglufirði, þriðjudaginn 6. desember  kl:16:00-18:00

Áríðandi að allir kettir séu hreinsaðir!

Innifalið í hreinsuninni er ormahreinsun. Eigendur fresskatta geta pantað geldingu hjá dýralækni en skylt er að gelda alla fressketti sex mánaða og eldri.
Þeir sem ekki gera grein fyrir köttum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði um að köttur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til kattahalds.

Auglýsing

Dýraeftirlit Fjallabyggðar