Íslenska sönglagið - Berjadagar 2018 í tuttugasta sinn

Hinir árlegu Berjadagar í Ólafsfirði í Fjallabyggð, verða nú haldnir í tuttugasta sinn frá 16. - 19. ágúst nk.  með uppskeru aðalbláberja og fjallagrasa.

Íslenska sönglagið er afmælisþema Berjadaga 2018. Íslensk sönglög hafa glætt hátíðina lífi allt frá því leikar fóru fyrst fram á þeim fagra stað, Ólafsfirði.

Meðal listamanna á hátíðinni í ár eru Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, en hann mun syngja sönglög í Ólafsfjarðarkirkju.

Norðlenska tvíeykið, Hundur í óskilum, þeir Hjörleifur og Eiríkur fara höndum um íslenska sönglagið í Tjarnarborg. Þeir félagar gerðu íslenskri menningu skil með eftirminnilegum hætti í Borgarleikhúsinu, og nú aftur á Berjadögum.

Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt í ár en kemur norður í Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 17. ágúst til að stjórna hátíðarkvöldi Berjadaga 2018, einskonar ,,lokakvöld”. Hér verður telft saman ólíkum tónverkum og ólíkir listamenn koma fram. Hæst ber að nefna að Bjarni leikur einleik þegar hann glímir við hina stórbrotnu Prelúdíu ,,Tableau” op. 39, nr. 7 eftir Rachmaninov á slaghörpuna í Ólafsfjarðarkirkju. Kristján Jóhannsson flytur m.a. Gígjuna eftir Sigfús Einarsson og á þessum tónleikum hljómar einnig hin ýðilfagra ,,Arpeggione” eftir Schubert í útsetningu fyrir selló og píanó. Eyjólfur Eyjólfsson tenór syngur þjóðlög úr ranni Beethoven ásamt Veru Panitch fiðluleikara og Bjarna Frímanni.

Afmælishelgin hefst í kirkjunni fimmtudagskvöldið 16. ágúst með tónleikum fiðluleikaranna Páli Palomares og Evu Panitch. Með þeim leikur Eva Þyrí Hilmarsdóttir á píanó. Parið flytur einleiks- og tvíleiksverk eftir ýmis tónskáld frá ólíkum tímum.

Aðrir listamenn sem fram koma á háíðinni:
Edda Björk Jónsdóttir, Jón Þorsteinsson, Ave Kara Sillaots, Sigrún Valgerður Gestsdóttir og Sigursveinn Magnússon

Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði og listamenn á heimasíðunni www.berjadagar-artfest.com. Dagskrá hátíðarinnar er einnig að finna á Facebook síðu Berjadaga.

Gleðilega Berjadagshátíð