Innritunarrreglur leikskóla (uppfært)

Leikskólinn Leikhólar
Leikskólinn Leikhólar

Þann 15. október sl. samþykkti bæjarstjórn Fjallabyggðar nýjar innritunar- og skráningarreglur fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskóli Fjallabyggðar býður upp á leikskólanám fyrir börn frá tveggja ára aldri. Þrátt fyrir þessar reglur er framkvæmd með þeim hætti að heimilt er að veita yngri börnum leikskóladvöl ef það fellur að skipulagi skólastarfs viðkomandi leikskóla. Leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri annast innritun barna í leikskóla Fjallabyggðar. Að jafnaði skal miða við að leikskóladvöl hefjist eftir sumarlokun leikskóla.

Reglurnar er hægt að nálgast hér og/eða undir útgefið efni hér á heimasíðunni.