Mynd: (http://www.ukbusinessdirectoryltd.co.uk/)
Vakin er athygli hundaeigenda á því að dýralæknir verður í Fjallabyggð
fimmtudaginn 20. nóvember sem hér segir:
Áhaldahúsinu Siglufirði 20. nóvember 2014 kl:13-15
Námuvegi 11 (Olís portið) Ólafsfirði 20. nóvember 2014 kl:16–18
Áríðandi að allir hundar séu hreinsaðir!
Vakin er athygli á því að skilyrði fyrir hreinsun er að búið sé að borga hundaleyfisgjald.
Framvísa þarf endurnýjun tryggingarskírteinis.
Þeir sem ekki gera grein fyrir hundum sínum, með því að mæta
í hreinsun, eða framvísa vottorði
að hundur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð
fyrir að verða sviptir leyfi til hundahalds.
Dýraeftirlit Fjallabyggðar