Seinni hundahreinsunardagurinn!
Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir:
Fimmtudaginn 14. nóvember
Ólafsfirði: Námuvegi 11 (Olís portið) kl. 13:00-15:00
Siglufirði: Í áhaldahúsinu kl. 16:00-18:00
Áríðandi að allir hundar séu hreinsaðir!
Vakin er athygli á því að skilyrði fyrir hreinsun er að búið sé að borga hundaleyfisgjald. Framvísa þarf endurnýjun tryggingarskírteinis. Þeir sem ekki gera grein fyrir hundum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði að hundur þeirra sé hreinsaður, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til hundahalds.
Dýraeftirlit Fjallabyggðar.