Fræðslufundur í Húsi eldriborgara í Fjallabyggð
Hreyfing fyrir fólk á besta aldri var yfirskrift fræðsluerindis Sveins Torfasonar sjúkraþjálfara í Húsi eldri borgara síðastliðinn miðvikudag. Í erindinu fjallaði Sveinn meðal annars um mikilvægi hreyfingar, hjálpartæki og verki.
Fræðsluerindið er liður í því að efla þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu og hvatning til frekari heilsueflingar þessa dugmikla og frábæra fólks.
Fræðsluerindið verður á dagskrá félagsstarfs eldri borgara í Skálarhlíð föstudaginn 16. mars kl. 10:30.
Félagsþjónusta Fjallabyggðar.