Heimilt að fjarlægja bíla í slæmu ástandi af einkalóðum

Mynd: Hnv.is
Mynd: Hnv.is

Á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra kemur fram að í nýjum úrskurði úskurðarnefndar umhverfis- og auðlindanefndar, sem kveðinn var upp þann 3. október síðastliðinn, komi það skýrt fram að heilbrigðiseftirlitið hafi heimild til að fjarlægja númerslausa bíla á einkalóðum, á þeirri forsendu einni að um sé að ræða lýti á umhverfinu. Þar segir að úrskurðað hafi verið í kærumáli á hendur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja sem fjarlægt hafi númerslausan, ryðgaðan bíl í slæmu ástandi af einkalóð.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur hingað til litið svo á að ríkari forsendur þyrfti til þess að fjarlægja númerslausa bíla af einkalóðum, s.s. að olía væri að leka af bílum eða þá að rúður og ljós væru brotin þannig að slysahætta stafaði af bílflökum.  Það er ljóst að úrskurðurinn auðveldar mjög tiltekt á einkalóðum að því er segir á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.