Hafnarvörður óskast í Ólafsfirði

Frá Ólafsfjarðarhöfn
Frá Ólafsfjarðarhöfn
Fjallabyggð óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa við Ólafsfjarðarhöfn. Umsóknarfrestur er til 10. desember. Æskilegt er að nýr hafnarvörður geti hafið störf 1. janúar 2008.

Starfssvið:
Hafnarvörður annast almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hann vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun. Hann vinnur að eftirliti með hafnarsvæðum, umferð um þau og umgengni og vinnur við daglegt viðhald hafnarmannvirkja og búnaðar hafnarinnar. Hann vinnur að öryggismálum hafnarinnar, mengunarvörnum og hafnarvernd með öðrum starfsmönnum Fjallabyggðarhafna.

Hæfniskröfur:
30 tonna siglingaréttindi - pungapróf
Ökuskírteini
Grunnþekking á tölvuvinnslu
Réttindi á hafnarvog eru kostur
Enskukunnátta er kostur

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Upplýsingar gefur Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri, netfang: thorir@fjallabyggd.is, sími: 4649100.