Eftirtaldar stöður eru lausar í Grunnskóla Fjallabyggðar:
Skólaliða vantar í 50% starf við skólann. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Skólaliðastarfið er blandað starf sem felur
í sér ræstingu á skólahúsnæði við Tjarnarstíg, Ólafsfirði og gæslu á göngum þess.
Vinnutími er eftir hádegi.
Stuðningsfulltrúa vantar við skólann í 65% starf. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið felur í sér
aðstoð í bekk og gæslu í frímínútum í yngri deildinni Norðurgötu, Siglufirði. Vinnutími er fyrir hádegi.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 464-9150, 845-0467 eða í gegnum netfangið jonina@fjallaskolar.is
Skólastjóri