Frístund, samþætt skóla- og frístundastarf í 1.-4. bekk

FRÍSTUND, samþætt skóla- og frístundastarf í 1.-4. bekk hefur gengið vel.

FRÍSTUND, samþætt skóla- og frístundastarf fyrir nemendur í 1.-4. bekk hefur verið starfrækt frá upphafi skólaárs, sl. haust. Um er að ræða samstarf grunnskólans, íþróttafélaga og tónlistarskólans.

Óhætt er að segja að starfið í Frístund hafi gengið mjög vel þrátt fyrir hnökra á fyrstu dögum starfsins. Með tímanum urðu nemendur og starfsfólk öruggari og skipulag liðkaðist. Í upphafi voru sett markmið með starfinu sem voru m.a. að efla og styðja við félagsleg tengsl og þroska nemenda, jafna möguleika þeirra til að stunda tómstundastarf, auka möguleika á félagsskap að loknum skóladegi og gefa börnum kost á að ljúka íþróttaæfingum og tónlistarnámi í beinu framhaldi af skóladegi.

Börn sem sækja íþróttaæfingar hjá íþróttafélögum á Frístundartímanum greiða æfingargjöld til íþróttafélaganna og þau börn sem sækja tónlistar- eða söngnám í þessum tímum eru skráðir nemendur í tónlistarskólanum og greiða skólagjöld til hans. Að öðru leyti er starf í Frístund nemendum að kostnaðarlausu. Dæmi um viðfangsefni sem eru endurgjaldslaus er hópastarf og kórstarf hjá tónlistarskólanum, frjáls leikur, frístundafjör, lestur á bókasafni og sund.

Að lokinni Frístund fá börnin ávaxtabita áður en haldið er heim á leið eða farið í Lengda viðveru.

Það er mikið ánægjuefni hversu margir hafa nýtt sér starfið. Á eftirfarandi mynd má sjá prósentuhlutfall nemenda sem nýta Frístund eftir bekkjum.

Frístund

Starfið í Frístund verður með svipuðu sniði eftir áramót. Ný viðfangsefni koma inn svo sem slagverkshópur, skák, föndur, spil og leikræn tjáning.


Skráning í Frístund stendur yfir og er opin til og með 18. desember nk.