Fréttir frá Leikskálum

Fréttir úr starfi leikskólans.

Í dag er 112 dagurinn og auðvitað var hann kynntur fyrir börnunum á leikskólanum. Aðalmarkmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið 112. En áhersla dagsins er einnig að þessu sinni að huga sérstaklega að barnavernd og öryggi og velferð barna og ungmenna.

Hér var mikið fjör á Leikskálum í dag en loksins kom bangsinn Blær til okkar en hann varð fyrir því óláni að týnast á ferðalagi sínu. Til allrar hamingju þá var Björgunarsveitin Strákar í eftirleit af kindum sem voru uppi í Skútudal, en þá rárkust þeir á þreyttan, svangan og slasaðan Blæ bangsa sem hafði verið á leið til okkar á Leikskála. Björgunarsveitin fylgdi Blæ til okkar þar sem Blæ langaði til að flytja til Siglufjarðar og eiga heima hjá okkur á Leikskálum. Bangsinn Blær skipar stórt hlutverk í verkefninu Vinátta sem er á vegum Barnaheilla sem við ætlum að vinna með hér í leikskólanum.

Starfsfólk leikskólans sótti námskeiðið Vinátta  sem er forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti og móta góðan skólabrag, eiga góð samskipti og hafa jákvæð viðhorf til allra.  Inní þetta verkefni fléttast svo dyggðirnar umburðarlyndi, virðing, umhyggja og hugrekki.

Viljum við þakka, Björgunarsveitinni fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Þetta er upplifun sem seint gleymist bæði hjá nemendum og starfsmönnum Leikskála , ástarþakkir fyrir okkur.