Tendrun jólatrjáa í Fjallabyggð og jólamarkaður Tjarnarborgar

Hefðbundnum föstum viðburðum sem tengjast jólahátíðinni í Fjallabyggð líkt og tendrun jólaljósa jólatrjánna fyrstu helgina í aðventu og árlegum jólamarkaði í Tjarnarborg hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkana. Yngri börn leik- og grunnskóla munu þó gera sér ferð að trjánum í desember og hengja á þau jólaskraut. Áramótabrennur og flugeldasýningar verða haldnar eins og venjulega sem og á þrettándanum.

Við minnum á rafrænt aðventudagatal á heimasíðu Fjallabyggðar og hvetjum alla sem ætla að bjóða upp á dagskrá/viðburð á aðventu, að skrá viðburðinn sinn þangað inn. Þannig geta bæjarbúar auðveldlega fylgst með öllu því sem um verður að vera í Jólabænum Fjallabyggð á aðventu.

Við hvetjum íbúa til að nýta opnunartíma verslana og þjónustuaðila til að dreifa álaginu. Virðum tveggja metra fjarlægðarmörkin og notum andlitsgrímur.