Á sameiginlegum fundi skólanefndar og byggingarnefndar hins nýja
framhaldsskóla, fyrr í dag, voru þau ánægjulegu tíðindi staðfest að
fengist hefði samþykki menntamálaráðuneytis fyrir að bjóða upp á nám
á framhaldsskólastigi á Siglufirði og í Ólafsfirði næsta vetur.
Nemendum býðst að stunda fjarnám með stuðningi og utanumhaldi í heimabyggð.
Að sögn Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, formans skólanefndar, verða næstu
skref þau að leitað verður til skráðra nemenda eftir staðfestingu og
skráningu í áfanga. Þegar skráning í áfanga liggur fyrir er unnt að
fara að huga að ráðningu kennara.