Forseti Íslands heimsækir Tröllaskagann

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson.
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson.
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, heimsækir Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð í vikunni. Forsetinn verður á Siglufirði á miðvikudag, í Dalvíkurbyggð fyrri part fimmtudagsins og í Ólafsfirði seinni partinn. Hann mun heimsækja fræðslustofnanir, menningarstofnanir, öldrunarstofnanir og valin fyrirtæki í sveitarfélögunum tveimur.