Fjölmenni sótti foreldrafund um forvarnir í Fjallabyggð

Frá foreldrafundi í Tjarnarborg
Frá foreldrafundi í Tjarnarborg

Í gær, miðvikudaginn 19. október, var haldinn fundur í Tjarnarborg, þar sem fulltrúar frá fíkniefnateymi Lögreglunnar á Norðurlandi eystra voru með fyrirlestur um forvarnir. 

Fundurinn var haldinn að frumkvæði foreldra og var ætlaður foreldrum nemenda í Grunnskóla Fjallabyggðar og MTR.  Mjög góð mæting var á fundinn en alls mættu rúmlega 80 foreldrar.

Fulltrúar lögreglunnar fóru yfir helstu efni sem eru í umferð og sýndu tæki og tól sem gjarnan eru notuð við fíkniefnaneyslu. Einnig fóru þeir yfir helstu atriði sem breytast í fari unglinga þegar þeir eru að byrja að fikta við neyslu fíkniefna og hvað foreldrar ættu helst að hafa í huga ef grunur leikur um að barna þeirra sé farið að neyta fíkniefna. Fundurinn var mjög góður og voru fjölmargar fyrirspurnir úr sal.

Frá foreldrafundi í Tjarnarborg  Frá foreldrafundi í Tjarnarborg

Frá foreldrafundi í Tjarnarborg  Frá foreldrafundi í Tjarnarborg