Endurbættur vefur Fjallabyggðar kominn í loftið

Skjámynd af endurbættum vef Fjallabyggðar
Skjámynd af endurbættum vef Fjallabyggðar

Í dag miðvikudaginn 26. september hefur endurbættur stjórnsýsluvefur Fjallabyggðar verið opnaður. Um er að ræða uppfærslu á vefumsjónakerfi vefsins og um leið hafa verið gerðar umtalsverðar breytingar á útliti, virkni og skipulagi vefsins. Efni vefsins hefur verið endurskoðað og nokkuð af nýju efni bætt við og verður þeirri vinnu haldið áfram. 

Markmiðið með nýjum og bættum vef er að gera hann enn notendavænni og skilvirkari en áður hefur verið. Leitast var eftir að setja vinsælar leitarleiðir fremst til að auðvelda notendum aðgang að því efni sem vinsælast er. Vefurinn verður áfram fyrst og fremst þjónustuvefur fyrir íbúa, starfsfólk, fréttamiðla og þá sem vilja kynna sér bæjarfélagið.

Opnuð hefur verið Rafræn Fjallabyggð þar sem íbúar Fjallabyggðar hafa aðgang að Mínum síðum og þar munu íbúar geta valið að fara inn um Bæjardyrnar þar sem yfirlit reikninga og samskipta íbúa við bæinn verða aðgengileg. efnu ehf. 

Það er einlæg von okkar að vefurinn nýtist íbúum og öðrum notendum vel.

Allar ábendingar, hrós sem og kvartanir vegna vefsins má gjarnan senda inn til okkar með því að fara á svæðið Bærinn minn - Fjallabyggð hér á forsíðu eða á netfangið lindalea@fjallabyggd.is