Mynd: Sigurður Ægisson, (siglfirdingur.is)
Næstkomandi föstudag, 23. september mun lið Fjallabyggðar keppa við lið Snæfellsbæjar í Útsvari, spurningarkeppni RÚV.
Umsjónarmenn eru sem fyrr Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Fjallabyggð teflir fram sama liði og í fyrra en liðið skipa
María Bjarney Leifsdóttir, Ámundi Gunnarsson og Halldór Þormar Halldórsson. Halldór Þormar verður þó fjarverandi
næstkomandi föstudag og mun Guðmundur Ólafsson leikari hlaupa í skarðið.
Þátturinn hefst kl. 20:10 á RÚV.
Fjallabyggð óskar þeim alls hins besta í keppninni.