Færni í ferðaþjónustu

Símey stendur fyrir námskeiði ætluðu starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni. Námsleiðin hefur verið metin af menntamálaráðuneytinu til styttingar náms í framhaldsskóla um allt að 5 einingar.

Tilgangur námsins er að búa þátttakendur sem best undir störf í ört vaxandi atvinnugrein.
Náminu er ætlað að efla persónulega, faglega og almenna færni til að veita gæðaþjónustu og takast á við fjölbreytt úrlausnarefni ferðaþjónustunnar.

Fræðsluaðili og staður:
   Símey, Þórsstíg 4, Ak.
Leiðbeinendur: Ýmsir leiðbeinendur         
Tími og dags:  Laugardaganna 21. mars, 28. mars, 4. apríl,18. apríl, 25. apríl, 2. maí og  9. maí mars kl. 09:00 – 16:00
Tímafjöldi:  40 klst.
Verð kr.:  9.000.-  (allir laugardagarnir)

Námið er í þremur hlutum:

1. hluti
Kynning og námsvinnubrögð
Gildi ferðaþjónustu
Þjónusta - grunnþættir
Vinnusiðferði og hlutverk starfsmanns

2. hluti
Mismunandi þjónustuþarfir
Þjónustulund og samskipti
Að þróast í starfi

3. hluti
Verkferlar á vinnustað
Sérhæfing, samfélags- og staðarþekking
Sérhæfing, þjónusta
Námslok og mat

Skráning og nánari upplýsingar á http://simey.is/?mod=news_namskeid&fun=viewItem&id=527