Eyfirski safnadagurinn 2014
Eyfirski safnadagurinn verður haldin í áttunda sinni laugardaginn 3. maí n.k. Þema safnadagsins að þessu sinni er HANDVERK.
Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan. Á þessum degi opna um 18 söfn og
sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi á fyrsta laugardeginum í maí undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er
að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð.
Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði og Síldarminjasafnið á Siglufirði taka þátt í Eyfirska safnadeginum og verður
opið á milli kl. 13:00 - 17:00. Ókeypis aðgangur er að söfnunum.