Fjárhagsáætlanagerð 2010

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Fjallabyggð sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2010 eru hvattir til að koma þeim til bæjarstjóra í síðasta lagi 19. október 2009. Þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2010 er bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 19. október n.k.

Eyðublöð má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.  Nánari upplýsingar eru á umsóknareyðublaði.
Skilyrði er að umsókn fylgi m.a. greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til, svo og síðasta skattframtal eða ársreikningur.
Áskilinn er réttur til að krefjast fyllri gagna en umsókn fylgja, þyki þess þörf.

 

Styrkumsóknir skal senda til:
Fjallabyggðar Gránugötu 24, 580 Siglufirði, eða Fjallabyggðar Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði.

Einnig hægt með rafrænum hætti á fjallabyggd@fjallabyggd.is

  

Fjallabyggð 5. október 2009

Skrifstofu- og fjármálastjóri