Dagur leikskólans

Félag leikskólakennara, menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli, standa fyrir „degi leikskólans“ þann 6. febrúar, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með deginum er að vekja athygli á um þýðingu leikskóla fyrir börn og skapa jákvæða ímynd leikskólakennslu. Deginum er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu leikskólans, gildi hans fyrir þjóðarauð og alla menningu.

Nánari upplýsingar er að finna hér.