Tónskóli Fjallabyggðar í samstarfi við félagsmiðstöðina NEON verður með opið hús í Menningarhúsinu Tjarnarborg
föstudaginn 22. febrúar.
Húsið verður opið frá kl. 15 .00 – 17.00 og fram koma nemendur og kennarar Tónskóla Fjallabyggðar. Boðið verður upp á
skemmtilega dagskrá, fjöldasöng og fjölbreytt tónlistaratriði. Félagsmiðstöðin Neon ætlar að bjóða
bæjarbúum upp á vöfflur, kaffi og kakó sem þakklætisvott fyrir frábæran stuðning við áheitamaraþon Neons sl. helgi.
Við viljum hvetja alla íbúa fjallabyggðar að koma og skoða nýju aðstöðu Tónskóla Fjallabyggðar í Menningarhúsinu
Tjarnarborg.