Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar færir Neon gjöf

Félagsmiðstöðin Neon var með opið hús fyrir íbúa Fjallabyggðar í gær miðvikudaginn 30. nóvember þar sem gestum gafst tækifæri á að skoða hið nýja og stórglæsilega húsnæði.  

Við tilefnið færði Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar félagsmiðstöðinni og unglingunum okkar glæslilega gjöf, 75" snjallsjónvarpstæki. 

Fjallabyggð þakkar rótarýklúbbnum rausnarlega gjöf. 

Mjög vel var mætt á opna húsið og stóðu nemendur í 8-10 bekk sig stórkostlega vel í hlutverki gestgjafa.

Myndir frá opnu húsi 30. nóvember