Breyting á útivistartíma

Vakin er athygli á því að útivist­ar­tími barna og ung­linga tekur breyt­ing­um 1. sept­em­ber.
Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukk­an 20:00 og 13 til 16 ára ung­ling­ar mega vera úti til klukk­an 22:00.
Bregða má út af regl­un­um hjá eldri hópnum þegar ung­ling­ar eru á heim­leið frá viður­kenndri skóla-, íþrótta- eða æsku­lýðssam­komu. Ald­ur miðast við fæðing­ar­ár.

Úti­vist­ar­regl­urn­ar eru settar sam­kvæmt barna­vernd­ar­lög­um og er þeim er m.a. ætlað að tryggja næg­an svefn en hann er börn­um og ung­ling­um nauðsyn­leg­ur. Svefnþörf­in er ein­stak­lings­bund­in en þó má ætla að börn og ung­ling­ar á grunn­skóla­aldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.
Mik­il­vægt er að fylgja því eft­ir að börn og ung­ling­ar fái næg­an svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölv­unni þegar þau eiga að vera kom­in í rúmið.
Mikilvægt er að foreldrar sýni samtöðu er kemur að því að virða útivistartímann.