Blue North Music festival, dagskrá

Fjölbreytt dagskrá á Blúshátíð
Fjölbreytt dagskrá á Blúshátíð

Námskeið á vegum Blue North Music Festival vikuna 20.-25 júní.
- Laust er á námskeið hjá Sigrid Keunen sem verður með námskeiðið Eldfuglinn (Firebird) í sundlaug Ólafsfjarðar. Sýning fer svo fram laugardaginn 25. júní
- Hannes Dufek heldur námskeið í Hljóðlist í Tónskóla Fjallabyggðar sem endar með framkomu á lokakvöldi hátíðarinnar laugardaginn 25. júní sem haldið verður í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá á Facebook undir „Blúshátíðin í Ólafsfirði "Blue North Music Festival"“ (www.facebook.com/blushatidolf)
Athugið að það er frítt inn á alla viðburði og námskeið nema lokakvöld Blue North Music Festival.

Dagskrá Blue North Music Festival Ólafsfirði
Miðvikudagur 22.júní 

Brimnes Hótel kl. 15:30:
Vöfflukaffi 
Tónlistarflutningur Sigrid Keunen (Belgía), Þorsteinn Sveinsson (Ísland), Rodrigo Lopes (Brasilía) 

Fimmtudagur 23.júní
- Ólafsfjarðarkirkja kl. 17:00
Linda Stonestreet (Bandaríkin) flytur frumsamda tónlist - Enginn aðgangseyrir

- Kaffi Klara kl. 20:00
Tónlist og tapas
Tónlistarflutningur Hannes Dufek (Austurríki)

Föstudagur 24.júní
- Ólafsfjarðarkirkja kl. 17:00
Sinéad Kennedy (Írland) tónlistarflutningur
- Höllin veitingastaður kl. 21:00-22:00
Julius Bucsis (Bandaríkin) flytur gítartónlist
Lifandi tónlist verður svo síðar um kvöldið fram á nótt (Lúðvík, Rúnar og Gísli) 

10% afsláttur af mat verður í boði fyrir tónleikagesti

Laugardagur 25.júní
- Sundlaug Ólafsfjarðar kl. 12:00
Sigrid Keunen (Belgíu)  stjórnar uppsetningu á leiksýningunni Eldfuglinn með börnum úr Fjallabyggð og Dalvík.

- Menningarhúsið Tjarnarborg kl. 13:00-16:00
Útimarkaður - ýmsir aðilar með söluborð
Lifandi tónlist
Skráning á útimarkað fer fram hjá Gísla Rúnari í síma 863-4369 eða á gislirunar4@gmail.com borðið kostar kr. 1.500.-

- Kaffi Klara kl. 15:00-17:30
Djass-dúettinn Marína & Mikael. Á efnisskránni eru gömul djasslög í glænýjum og áður óheyrðum útsetningum með brakandi nýjum textum á íslensku og ensku, ásamt þeirra uppáhalds djasslögum.

- Menningarhúsið Tjarnarborg kl. 21:00
Tónleikar og uppskeruhátið.  Fram koma:
- Eyþór Ingi Gunnlaugsson ásamt Gunnlaugi Helgasyni, Guito Thomas, Rodrigo Lopes,  Dagmanni Ingvasyni og Magnúsi G Ólafssyni.
- Blúsrokkarinn Beggi Smári og Bexband, Pétur Sigurðsson bassi, Pétur Daníel Pétursson trommur.
- Einnig koma fram listamenn sem komið hafa fram á Blue North Music festival frá miðvikudegi til laugardags.
Miðaverð 2.500 kr.