Berjadagar 2017, tónlistarhátíð í Ólafsfirði haldin í 19. sinn

Tónlistarhátíðin Berjadagar fer fram í Ólafsfirði 17. - 19. ágúst. Á hverju kvöldi verða klassískir tónleikar og ýmsir viðburðir í boði á daginn. Dagskráin er fyrir alla aldurshópa og ókeypis aðgangur fyrir 18 ára og yngri.

Opnunartónleikarnir „Líttu sérhvert sólarlag“ voru haldnir í Ólafsfjarðarkirkju i gærkveldi en þar voru flutt þekkt ljóð og aríur. Í kvöld þann 18. ágúst verða kammertónleikarnar „Reimleikar” í kirkjunni og á morgun laugardag 19. ágúst mun Stelpurófan rappa  fyrir börn og unglinga.

Gestir eru hvattir til að tryggja sér miða á „Tapas og tónlist í Tjarnarborg“ sem fram fer laugardagskvöldið 19. ágúst í Menningarhúsinu þar sem gestir munu gæða sér á tapasréttum og ljá suðrænni tónlist eyra. Bjarni Frímann Bjarnason kemur fram ásamt glæsilegum hópi tónlistarmanna og söngvara.

Sérstakur gestur hátíðarinnar að þessu sinni er þýska söngstjarnan Frédérique Friess. Klykkt er út með Berjamessu og gönguferð sunnudaginn 20. ágúst.

Allar nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu Berjadaga

Dagskrá Berjadaga 2017.