Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2015

Frá afhendingu viðurkenningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2014.
Frá afhendingu viðurkenningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2014.
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og/eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2015.  Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamanni eða hópi. 
Styrkur til bæjarlistamanns 2015 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps. 

Umsóknir eða ábendingar skulu berast til sveitarfélagsins fyrir 12. desember 2014, með bréfi eða í tölvupósti á netfang markaðs- og menningarfulltrúa; kristinn@fjallabyggd.is 

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar.

Nánar má lesa um bæjarlistamenn Fjallabyggðar á heimasíðu Listasafns Fjallabyggðar.