Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2014, umsóknarfrestur framlengdur.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og/eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2014.
Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamanni eða hópi.
Styrkur til bæjarlistamanns 2014 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps.
Umsóknir eða ábendingar skulu berast til sveitarfélagsins í síðasta lagi sunnudaginn 5. janúar 2014, með bréfi eða í tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar.


F.h. Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar

Ólafur Þór Ólafsson
skrifstofu- og fjármálastjóri
sími 464 9100 / 464 9200