Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018

Bæjarbryggjan á Siglufirði
Bæjarbryggjan á Siglufirði

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 604, 3. júlí 2017

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018

  • Bolungarvík
  • Akureyrarkaupstað (Grímsey og Hrísey)
  • Borgarfjörð eystri
  • Djúpavog

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 17/2018 í Stjórnartíðindum

  • Vesturbyggð (Brjánslækur Patreksfjörður og Bíldudalur)
  • Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
  • Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2018.

Fiskistofa 17. janúar 2018

 

Fylgiskjöl til útprentunar:

Umsókn um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018 (pdf)

Samningur um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 (pdf)